Að lifa heilbrigðu lífi snýst um að taka ábyrgð á eigin heilsu og hafa reglu í daglegu lífi, en heilbrigt líferni er besta lausnin til að koma í veg fyrir meiðsli og veikindi. En hvernig skilgreinir maður heilbrigðan lífsstíl? Okkur finnst heilbrigður lífstíll skiptast í fjóra þætti en þeir eru: líkami, hugur, sambönd og umhverfi. Heilbrigður lífstíll er afar vítt hugtak en hér má finna að okkar mati mikilvægustu þætti hans. Ef að við erum líkamlega vel á okkur komin hefur það áhrif á skapið og ef við erum sátt við okkur sjálf og lífið þá höfum við kraft til að borða hollan mat, hreyfa okkur, sofa nóg , hvílast og taka þátt í félagslífi.
Hugtakið heilbrigður lífsstíll er æva forn. Á fyrstu öld fyrir krist sagði rómverska ljóðskáldið, Juvenal: Mens sana in corpore sano, sem útleggst á íslensku sem heilbrigð sál í hraustum líkama. Þessi málsgrein kom fyrir í ljóði hans, en ljóðið var nokkurs konar listi yfir það mikilvægasta í lífinu. Málsgreinin var efst á listanum, sem sýnir að heilbrigður lifnaður hefur hefur verið talinn mikilvægur í áranna rás.
Við heitum Íris Eir Árnadóttir og Lilja Hákonardóttir og við erum í 10. bekk í Laugalækjarskóla. Síðastliðnar vikur höfum við verið að vinna að lokaverkefni um heilbrigðan lífsstíl, en þessi vefsíða var afrakstur okkar, auk bókar sem við bjuggum til. Við vildum búa til vefsíðu svo að fólk gæti fræðst auðveldlega um heilbrigðan lífsstíl en í honum felast alls konar þættir sem margir gera sér ekki grein fyrir.