Þakklæti
Það sem flestir þrá er að vera hamingjusamir og glaðir. Margir leggja ýmislegt á sig fyrir hamingjuna en hvernig getur maður stuðlað að hamingjunni?
Þakklæti eykur hamingju, innri frið og öryggi og þeir sem eru þakklátir fyrir það sem þeir hafa eru hamingjusamari en aðrir. Rannsóknir sýna að þeir sem eru þakklátir telja sig búa við betri félagslegan stuðning, minni streitu og finna fyrir minni depurð. Þakklæti hefur jákvæð áhrif á líðan og upplifun fólks á aðstæðum á góðan hátt. Til þess að auka þakklæti og þar að leiðandi hamingju er mælt með því að stunda einfalda æfingu öll kvöld eða morgna og þakka fyrir þrjú atriði sem maður er þakklátur fyrir. En hvernig getur svona lítil æfing haft svona mikil áhrif á hamingjuna og andlega líðan okkar? Þegar við horfum markvisst á það sem við erum þakklát fyrir vekjum við upp þakklætistilfinningu sem hefur þau áhrif að við verðum næmari fyrir aðstæðum sem leiða til þakklætis. Önnur skýring er að heilinn er eins og vöðvi. Í hvert skipti sem þú æfir þakklæti ertu að þjálfa taugabrautir sem bera ábyrgð á því að finna ástæður til að vera hamingjusamur. Eftir því sem fleiri taugabrautir virkjast þeim mun sterkari verða áhrifin. Smám saman getur þessi æfing bætt lífið svo um munar.

Hugleiðsla
Hugleiðsla er tegund einbeitingar sem felst í að víkja til hliðar hugsunum sem eru að valda streitu eða stressi. Talað er um að tæma hugann, en oftast á þetta frekar um að leyfa hugsunum að flæða í gegn án þess að festa sig við þær. Hugleiðsla hjálpar okkur að draga úr kvíða og áhyggjum og auðveldar okkur að takast á við bæði líkamlegan og andlegan sársauka. Til eru margar tegundir hugleiðslu, en snjallforrit eins og Headspace og Waking Up eru mjög aðgengileg og kynna þau helstu grundvallaratriði hugleiðingar. |
Sköpun
Sköpun er líklega það helsta sem skilur manninn frá öðrum dýrum. Dæmi um sköpunarlist í okkar vestræna heimi er leiklist, tónlist, ritun, myndlist og dans. Fyrir sumum er listræn sköpun áhugamál, fyrir aðra er hún atvinna. Að stunda listræna sköpun getur verið afar gefandi fyrir andlega og líkamlega líðan. Fólk getur tjáð sig án orða um erfið atvik með sköpun og listræn tjáning getur einnig stuðlað að viðhaldi eða endurreisnar á jákvæðri sjálfsmynd. Að skrifa tilfinningalegan texta um erfiðar minningar getur hjálpað fólki að sigrast á áföllum og stjórna neikvæðum tilfinningum. Það hefur sýnt sig að það að skrifa texta um góðar og jákvæðar minningar, eða um bjarta framtíð, getur haft mjög styrkjandi andleg áhrif.