vinir
Vinir geta haft áhrif á líf einstaklings á einn hátt eða annan en það sem fæstir vita er að þessi áhrif eru sterkari en marga grunar. Vinir hafa ekki bara áhrif á ákvarðanir þínar, heldur líka á líðan þína. Félagsskapur góðra vina hefur jákvæð áhrif á heilsuna þína, hins vegar getur slæmur félagsskapur haft slæm áhrif, bæði á andlega og líkamlega líðan. Mikilvægt er að vanda það hverjum maður eyðir tíma sínum með og hversu miklum tíma maður eyðir með vinum sínum.
Fjölskylda |
Fjölskyldan er eitt það mikilvægasta sem við höfum, en stuðningur fjölskyldu getur haft afar jákvæð áhrif á heilsu. Félagsleg tengsl, svo sem við nána fjölskyldumeðlimi, geta dregið úr líkum á langvarandi sjúkdómum, t.d. ýmissa tegunda geðsjúkdóma. Það er mikilvægt að geta leitað til fjölskyldunnar í erfiðleikum.
|
Einvera
Einvera merkir að vera einn með sjálfum sér og taka ákvarðanir án hjálpar annarra. Að vera einn getur hjálpað manni að þekkja sinn eigin persónuleika, en því betur sem maður þekkir sjálfan sig þeim mun sjálfsöruggari er maður í kringum aðra. Margir listamenn vilja gjarnan vera í ró og friði frá amstri umheimsins þegar þeir eru að vinna eitthvað skapandi. Rannsóknir sýna einnig að fólk verður hamgingjusamara þegar það eyðir einhverjum tíma með sér sjálfum sér; það finnur fyrir minna stressi og er ólíklegra til að leggjast í þunglyndi.
|