birta
Birta getur haft mikil áhrif á andlega líðan. Sólarljósið gefur okkur D-vítamín og auk þess hefur hringrás ljóss og myrkurs áhrif á líkamsklukku okkar og gæði svefnsins. Líkamsklukkan er okkar innri taktur en sólin hefur mikil áhrif á hana og hjálpar okkur að skipta á milli vöku og svefns. Að fá góða dagsbirtu á morgnana getur hjálpað til við að stilla af líkamsklukkuna og þannig stuðlað að því að sofna á réttum tíma á kvöldin. Birtan hjálpar manni að vakna og eykur orku. Til þess að geta fengið góðan djúp - og draumsvefn er gott að hafa í huga að forðast blátt ljós frá snjalltækjum eftir sólsetur, því blátt ljós getur platað heilan til að halda að það sé dagur.
|
|
|
Mikilvægi þess að vera skipulagður er að lágmarka streituvaldandi aðstæður. Með því nýtum við einnig tímann okkar betur og sömuleiðis verður svefninn dýpri og betri, sem skilar sér í betri afköstum yfir daginn. Það getur einnig hjálpað manni að hafa hreint í kringum sig, en það hefur jákvæð áhrif á líðan.
|
Hreinlæti er mjög mikilvægt en það getur varðar marga þætti. Afar gott er að búa í hreinu umhverfi með góðum loftgæðum, t.d. laus við myglusvepp sem getur valdið sleni eða alvarlegri öndunarsjúkdómum. Sömuleiðis skipta ljósgæði miklu máli og einnig að vera laus við hávaða, t.d. frá umferð eða öðrum hlutum sem geta angrað mann eða haldið fyrir manni vöku. Síðast en ekki síst er mikilvægt að umhverfið sé hreint og skipulagt, en það hefur jákvæð áhrif á líðan manns.
|